Vefkökur

Því miður er þetta ekki ætar kökur

Hvað er vefkaka (e. cookies)

Kaka er textastrengur með upplýsingum sem vefsvæði flytur yfir í kökuskrá vafrans á harða diski tölvunnar þinnar til að vefsvæðið geti greint hver þú ert. Kökur geta gert vefsvæði kleift að raða efni upp samkvæmt áhugamálum þínum á skjótari máta. Flest stór vefsvæði nota kökur. Ekki er hægt að nota kökur einar og sér til að auðkenna þig.

Kaka inniheldur yfirleitt heiti lénsins sem viðkomandi kaka kemur frá, endingartíma hennar og gildi, sem er allajafna handahófsvalin einkvæm tala.

Tvær gerðir af kökum eru notaðar á þessu vefsvæði:

  • Lotukökur, sem eru tímabundnar kökur sem eru fjarlægðar úr kökuskrá vafrans þegar þú yfirgefur vefsvæðið.
  • Viðvarandi kökur, sem eru mun lengur í kökuskrá vafrans (hversu lengi ræðst af endingartíma viðkomandi köku).

Stefna okkar um kökur

Notkun á kökum á þessu vefsvæði og upplýsingar sem er safnað. Lotukökur eru notaðar til að auðvelda þér að nota vefsíðuna okkar og koma í veg fyrir að þú þurfir að slá sömu upplýsingarnar inn oftar en einu sinni.

Viðvarandi kökur eru notaðar:

Til að auðvelda okkur að auðkenna þig sem einstakan gest (með tölu; ekki er hægt að auðkenna þig persónulega) næst þegar þú heimsækir vefsvæðið okkar.
Til að gera okkur kleift að sérsníða efni eða auglýsingar að þínum áhugamálum eða til að koma í veg fyrir að þú sjáir sömu auglýsingarnar aftur og aftur.
Til að safna nafnlausum tölfræðigögnum sem gera okkur kleift að greina hvernig fólk notar vefsvæðið okkar og bæta uppbyggingu vefsvæðisins. Ekki er hægt að persónugreina þig á þennan máta.

Kökur frá þriðja aðila

Kökur frá þriðju aðilum eru sendar í gegnum þetta vefsvæði.

Þær eru notaðar í eftirfarandi tilgangi:

  • Til að birta auglýsingar á vefsvæði okkar og greina hvort fólk smellir á þær.
  • Til að stjórna því hversu oft þú sérð tiltekna auglýsingu.
  • Til að sérsníða efni að þínum smekk.
  • Til að telja fjölda nafnlausra notenda vefsvæðisins.
  • Til að tryggja öryggi í verslunarkörfum eða færslum.

Vefvitar

Sumar vefsíður okkar kunna að innihalda rafrænar myndir, svokallaða vefvita (stundum kallaðar auðar gif-myndir), sem gera okkur kleift að telja hversu margir hafa skoðað viðkomandi síður. Vefvitar safna eingöngu takmörkuðum upplýsingum sem innihalda kökunúmer, tíma og dagsetningu sem síða var opnuð á og lýsingu á síðunni sem vefvitinn er á. Við kunnum einnig að nota vefvita frá þriðju auglýsingaaðilum. Þessir vitar geyma ekki neins konar persónugreinanlegar upplýsingar og eru aðeins notaðir til að greina skilvirkni tiltekinnar herferðar

Stjórnun á kökum

Kökum hafnað eða þær heimilaðar

Þú getur samþykkt eða hafnað kökum í stillingum vafrans. Ef þú gerir kökur óvirkar er aftur á móti hugsanlegt að þú getir ekki notað alla gagnvirka eiginleika vefsvæðisins okkar.

Hvað getur þú gert?

Hægt er að lesa allt um vefkökur hér

Ef þú hefur ákveðið að veita ekki samþykki þitt fyrir notkun á kökum sem þess krefjast, eða ef þú hefur afturkallað slíkt samþykki, bjóðast þér einungis þeir eiginleikar vefsvæðisins sem þurfa ekki á slíkum kökum að halda til að hægt sé að nota þá. Svæði á vefsvæðinu sem innihalda hugsanlega efni frá þriðju aðilum, og koma því fyrir kökum frá þriðju aðilum, verða ekki aðgengileg þér ef svo er.

Ef þú vilt alls ekki samþykkja neinar kökur geturðu líka stillt það í vafranum.