Líftímavirði er ákveðin aðferð sem segir til um þær tekjur sem fyrirtækið fær frá viðskiptavinum sínum gegn því að viðhalda tryggð við hann. Líftímavirði viðskiptavinar snýr ekki eingöngu að þeim tekjum sem fyrirtæki fær frá þessum tiltekna viðskiptavini heldur snýst það einnig um auknar tekjur sem geta komið frá góðu umtali (e. word of mouth advertising)
Líftímavirði hefur eftirfarandi áhrif á arðsemi:
- Að ná í nýja viðskiptavini hefur í för með sér umtalsverðan kostnað og það getur tekið nokkur ár að breyta nýjum viðskiptavinum í arðbæra viðskiptavini.
- Eftir því sem viðskiptavinir verða ánægðari og öruggari í sambandi sínu við fyrirtæki því meiri líkur eru á að þeir auki viðskipti við fyrirtækið.
- Þegar viðskiptavinasambandið þróast eykst gagnkvæmur skilningur og samvinna, þetta stuðlar að skilvirkni og lækkar rekstrarkostnað. Viðskiptavinir eru stundum tilbúnir að samþætta upplýsingakerfi sín til að lækka enn frekar kostnað.
- Ánægðir viðskiptavinir eru líklegri til að vísa nýjum viðskiptavinum til fyrirtækja, það stuðlar að auknum hagnaði og kostnaður við öflun nýrra viðskiptavina lækkar verulega. Í sumum greinum geta tilvísanir spilað mikilvægt hlutverk í öflun nýrra viðskiptavina, sérstaklega þegar áhætta fylgir vali á vöru.
- Tryggir viðskiptavinir geta verið minna viðkvæmir fyrir verði og minni líkur eru á að þeir hætti við kaup vegna verðhækkana. Þetta á sérstaklega við á viðskiptamörkuðum (e. B2B) þar sem samband við fyrirtækið er metið þegar litið er til skiptikostnaðar.
Stefnumiðuð stjórnun viðskiptatengsla hjálpar fyrirtækjum að eiga í persónulegum samskiptum við viðskiptavini sína og byggja þannig upp sterkara samband og aukna arðsemi fyrirtækisins. Með því að rækta sambandið við trausta, hliðholla og reglulega viðskiptavini gefst fyrirtækjum tækifæri til þess að safna hagnýtum upplýsingum um hvern viðskiptavin, greina líftímavirði hans, bæta þjónustu og að lokum að auka líftímavirði