Opens in a new tab

Loftur Ágústsson, myndlistarmaður

Vefur fyrir listamann og lærimeistara: Loftur Ágústsson

Sérsmíðaður listamannavefur fyrir Loft Ágústsson, manninn sem kenndi mér markaðsfræðin og kom mér á þá braut sem ég er á í dag.

Sagan á bak við verkefnið

Maðurinn sem kom mér af stað

Loftur var markaðsstjóri BL þegar ég hóf störf í markaðsdeildinni þar. Hann kenndi mér ótal margt, kveikti áhuga minn á markaðsmálum og ég á honum mikið að þakka. Að stórum hluta er það honum að þakka að ég er þar sem ég er í dag.

Í dag helgar Loftur sig myndlistinni og hefur sýnt verk sín bæði hér heima og í Portúgal. Þegar hann þurfti vef fyrir listina var mér bæði ljúft og skylt að smíða hann: vef sem sýnir verkin eins og þau eiga skilið og sem hann getur uppfært sjálfur.

– Ásgeir, Mánahöll

  • Láta verkin njóta sín án truflunar.

  • Halda utan um verk, seríur og sýningar.

  • Gera Lofti kleift að uppfæra vefinn sjálfur.

Nálgun Mánahallar

Einfaldleiki sem leyfir listinni að tala

Á listamannavef á verkið að tala, ekki vefurinn. Við völdum hlutlausa liti, klassískt letur og mikið loft svo verkin njóti sín, og smíðuðum allt frá grunni fyrir Loft.

  • Hönnunin

    • Hlutlaus umgjörð: Ljós grunnur og fáir litir svo ekkert keppi við verkin.
    • Klassískt letur: Fágað og tímalaust, í anda listarinnar.
    • Myndasafn: Verk af ólíkum stærðum raðast fallega saman í eitt gallerí.
    • Ljósakassi: Hvert verk opnast í fullri stærð með einum smelli.
  • Forsíða listamannavefs Lofts Ágústssonar
  • Verkasafn á vef Lofts Ágústssonar
  • Um listamanninn Loft Ágústsson

Stafrænt heimili vörumerkisins

Sérsmíðaður vefur, ekki sniðmát

Vefurinn er forritaður sérstaklega fyrir Loft í Next.js og fór í loftið í janúar 2026. Gestir sjá fallegt gallerí, en á bak við það er einfalt stjórnborð sem Loftur notar sjálfur.

  • Gallerí og seríur: Verkin flokkuð í seríur sem gestir geta síað eftir.

  • Sýningar og tilkynningar: Yfirlit yfir sýningar og fréttir af því sem er fram undan.

  • Stjórnborð: Loftur bætir sjálfur við verkum, seríum og tilkynningum og uppfærir eigin prófíl.

  • Innskráning án lykilorðs: Öruggur innskráningarhlekkur sendur í tölvupósti.

  • Hraðvirk myndhýsing: Myndir vistaðar í skýinu svo galleríið hleðst hratt.

Skoðaðu vefinn í beinni á lofturagustsson.is ↗ (opnast í nýjum glugga)

Forsíða listamannavefs Lofts Ágústssonar