Opens in a new tab

Endurskin

Öryggi sem sést: Nýtt vörumerki og nýr vefur fyrir Endurskin

Hvernig Mánahöll gaf Endurskin nýtt útlit, nýjan vef og traustan grunn fyrir leitarvélar og mælingar, svo vottaðar endurskinslausnir finnist og seljist allt skammdegið.

Áskorunin

Góð vara, en vefur sem hélt aftur af henni

Endurskinsmerki getur ráðið úrslitum: ökumaður sér gangandi vegfaranda í 20 til 30 metra fjarlægð án endurskins, en í allt að 300 metra fjarlægð með því. Endurskin selur CE-vottaðar lausnir sem standast strangar evrópskar kröfur, bæði fyrir fjölskyldur og fyrirtæki sem vilja sérmerkt endurskin.

Fyrirtækið var með starfandi WordPress- og WooCommerce-verslun, en útlitið var komið til ára sinna, engar mælingar voru til staðar og engin áhersla á leitarvélabestun. Endurskin vissi því ekki hvaðan gestir kæmu og fannst illa þegar fólk leitaði að endurskinsmerkjum.

  • Gera öryggisvöru eftirtektarverða og byggja upp traust á CE-vottun.

  • Ná bæði til fjölskyldna og fyrirtækja.

  • Koma upp mælingum og leitarvélabestun frá grunni.

Nálgun Mánahallar

Vörumerki sem sést, rétt eins og varan

Markmiðið var skýrt: vörumerki sem endurspeglar það sem varan gerir. Við byggðum ímyndina á einni hugmynd, öryggi sem sést, og settum saman vörumerkjahandbók sem heldur öllu samræmdu.

  • Vörumerkið Endurskin

    Mánahöll sá um:

    • Lógó: Nýtt merki sem sameinar öryggi, sýnileika og nútímalega hönnun, í aðalútgáfu og staflaðri útgáfu.
    • Litapalletta: Gulgrænn stendur fyrir sýnileika og orku, djúpblár byggir upp traust.
    • Letur: Nútímalegt og vel læsilegt, traust en aðgengilegt í öllum stærðum.
    • Rödd og myndmál: Áreiðanleg og hlý rödd, björt myndnotkun og samræmd tákn.
  • Lógó Endurskins í fullum litum, hannað af Mánahöll
  • Stöfluð útgáfa af lógói Endurskins
  • Vefverslun endurskin.is með CE-vottuðum endurskinsmerkjum

Stafrænt heimili vörumerkisins

Nýr vefur sem fræðir og selur

Við fluttum Endurskin yfir í Bricks Builder og smíðuðum vefinn upp á nýtt, án þess að missa vefverslunina sem fyrir var. Endurskin.is sameinar nú fræðslu og verslun: gestir læra af hverju endurskin skiptir máli og hvernig á að bera það rétt, og geta svo keypt vottaða vöru á sama stað.

  • Hraðari og nútímalegri vefur: Byggður á WordPress með Bricks Builder fyrir hraða og sveigjanleika.

  • Vefverslun í nýjum búningi: WooCommerce-verslunin fylgdi með yfir í nýja vefinn, með einfaldari kaupleið.

  • Fræðsla sem byggir upp traust: Hagnýt ráð sem svara spurningum áður en þær vakna.

  • Mælingar frá fyrsta degi: Nú sér Endurskin hvaðan gestir koma og hvað skilar sölu.

  • Leitarvélabestun frá grunni: Svo Endurskin finnist þegar fólk leitar að endurskinsmerkjum.

Skoðaðu vefinn í beinni á endurskin.is ↗ (opnast í nýjum glugga)

Forsíða endurskin.is, nýr vefur hannaður af Mánahöll