Almar bakari
Stafræn endurnýjun og sjálfvirkt pöntunarferli
Almar Bakari er rótgróið bakarí með sterka viðveru í samfélaginu. Markmiðið með samstarfinu var að styrkja stafræna framsetningu þeirra, samræma útlit og hámarka nýtingu starfsfólks með aukinni sjálfvirkni.
Áskorunin (The Challenge)
Upphafið: Spurning sem þurfti svar
Almar Bakara vantaði nútímalegri heimasíðu sem gæti annað flóknum pöntunum á borð við veislubakka og sérvörur, ásamt því að bæta aðgengi viðskiptavina að vöruúrvali. Mikilvægt var að tengja vefverslunina beint við bakendakerfi til að einfalda bókhald og birgðahald.
Ný vefsíða og sjálfvirkni í pöntunum.
Fagleg vörumyndataka og textagerð.
Samþætting við DK og markaðsefni.
Stafrænt heimili vörumerkisins
Girnilegasta heimasíðan
Við hönnuðum og settum upp nýja WordPress heimasíðu með Bricks Builder og WooCommerce vefverslun. Helstu þættir verkefnisins voru:
Heildstæð vefverslun: Uppsetning á yfir 100 vörum með nákvæmum innihaldslýsingum, næringargildum og ofnæmisvöldum.
Vörumyndataka: Mánahöll sá um faglega ljósmyndun á vöruúrvali til að tryggja lystugt og einsleitt útlit á vefnum.
Snjallt pöntunarkerfi: Innleiðing á dagsetningastýringu og sjálfvirkri lokun pantana (hámark á dag) til að létta álagi á framleiðslu.
Samþætting við DK: Full tenging við DK bókhaldskerfið til að tryggja flæði gagna milli sölu og bókhalds.
Markaðsefni: Auk vefsmíðinnar höfum við aðstoðað Almar Bakara við framleiðslu á markaðsefni fyrir samfélagsmiðla og áberandi auglýsingaskilti (Billboard).


